Internet Explorer |  Firefox og Safari | 


Hlusta á texta
Sæki hljóðskrá...
Ókeypis stuðningur við námið

Lestrarörðugleikar á borð við ýmsar útgáfur af lesblindu þvælast fyrir mörgu af okkar besta fólki - og sumt hrekst jafnvel frá námi vegna þeirra.
Við viljum leggja okkar að mörkum til þess að gera fólki lífið aðeins auðveldara, hjálpa því að hjálpa sér sjálfu eins og sagt er.

Þess vegna bjóðum við ókeypis aðgang að netsíðu og netkerfi sem gerir fólki kleift að fá hvaða texta sem er lesinn upphátt.

Hér er það sem þú færð - frítt:

  1. Þú getur merkt texta á hvaða vefsíðu sem er og smellt á tengilinn Lestu þetta. Við það er textinn fluttur á vefsíðu hjá okkur og lesinn upphátt.
  2. Þú getur slegið inn hvaða texta sem er og fengið hann lesinn upphátt. Upplagt við að sannreyna hvort verkefni sem skila þarf eru rétt skrifuð.

Til viðbótar vinnum við með skólum að því að auðvelda fólki að taka próf. Þá gefst námsmönnum tækifæri til að:

  1. Fá einstakar spurningar lesnar fyrir sig, til að tryggja réttan skilning.
  2. Fá svarið lesið yfir til að tryggja að hugsunin hafi komist óbrengluð til skila.

 

 





Vefþulan

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá.

Þú skrifar, vefþulan les

Spurningar og svör 

Vefþulan á vefinn þinn

Til að nota vefþuluna þarftu að setja tengil á viðeigandi stað í vefvafranum þínum.

Hér eru leiðbeiningar:

Fyrir Internet Explorer

Fyrir Firefox og Safari

Vefþulan er splunkuný og okkur þætti vænt um ef þú létir okkur vita hvernig hún virkar, hvort eitthvað mætti betur fara, hvort einhverjir hnökrar séu á framburði eða virkni. Þú getur gert það með því að senda póst á hjalp@vefthulan.is   - eða ef þú þarft hjálp geturðu hringt í síma 618-8899.




Tikktakk Hugbúnaður ehf - www.tikktakk.is - Skeifan 8, 108 Reykjavík - Sími: 512 8800 - tikktakk@tikktakk.is