Windows
Já. Ef þú þarft að nota Vefþuluna það mikið að vefþjónustan dugi þér ekki. Vefþulan er íhlutur fyrir taltæknihugbúnað og er þannig einnig fáanleg með skjálesurum af ýmsum gerðum. Aicon ehf er að þróa Windows útgáfu af vefþulunni og verður hún tilbúin í byrjun sumars 2009.
Mac OS X
Já. Vefþulan er í vinnslu fyrir Mac líka, og verður klár um svipað leyti og fyrir Windows.
Vefþulan fyrir skóla
Skólar og aðrir sem þjónusta lesblinda námsmenn geta fengið aðgang að Vefþulunni á hagkvæmu verði.
Við vinnum nú að því að hanna vefsíður sem auðvelda nemendum námið, bæði með því að lesa fyrir þá texta og með því að auðvelda þeim að taka próf. Vefþulunni er þá beitt sem prófarkalesara, þannig að nemandinn heyrir það sem hann slær inn á lyklaborðið og getur þá breytt því sem lesblindan hefur haft áhrif á.
Áhugasamir geta haft samband við okkur í
þjónustupósthólfinu.
Vefþjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir
Vefþulan er í boði sem vefþjónusta fyrir þau fyrirtæki og stofnanir sem láta aðgengismál sig einhverju skipta.
Hnappur fyrir Vefþuluna er þá felldur inn í vefumsjónarkerfi fyrirtækjanna og birtist með greinum á vef þeirra.
Vefþulan er eftir sem áður hýst hjá okkur, en fyrirtækið missir viðskiptavininn ekki út af síðunni sinni, kjósi hann að nota Vefþuluna.
Vefþulan á einstaklingsvefjum
Hægt er að útbúa viðbót við flesta vefi svo hægt sé að spila texta beint af þeim.
Þetta á einnig við um einstaklingsvefi og blogga.
Af hverju hljómar tölvuröddin Ragga betur hjá ykkur?
Ragga er íhlutur, sem kann ekkert annað en að bera fram texta nokkuð skammlaust - ef textinn er á íslensku.
Hægt er að fínstilla Röggu með því að láta hana segja hljóðritaðan texta - brjóta hann upp, setja inn þagnir, feika útlend orð og fleira. Það er það sem við gerum.
Okkar Ragga kemur því alltaf til með að hljóma betur en Ragga einhvers staðar annars staðar.
Segja má að þetta sé spurning um að kunna að fara með verkfærið.
Hvernig virkar tölvuröddin Ragga?
Ragga er talgervill sem byggir á RealSpeak 4, sem er talgervilstækni sem fyrirtækið Nuance þróar. Munurinn á Röggu og eldri gerðum talgervla er sá að hún stafar ekki hljóðin heldur á hún í mörgum tilfellum orðið í heild sinni í réttri mynd. Þannig hljómar hún umtalsvert betur en eldri gervlar, þar sem samskeyti hljóða eiga það til að heyrast mjög greinilega. Þegar við vorum að búa hana til var lögð mikil vinna í að kortlegga öll hljóð sem notuð eru í nútíma íslensku - og síðan var saminn texti þar sem öll þessi hljóð komu fyrir í öllum hljómföllum sem notuð eru.
Ragnheiður Clausen var fengin til að lesa þennan texta og eyddi hún nokkrum vikum í hljóðveri við það. Þess má til gamans geta að Nuance hefur aldrei séð nokkrar upptökur ganga svo hratt og örugglega fyrir sig - og eiga Ragnheiður og upptökustjórarnir í Stúdíó Upptekið mikinn heiður skilinn. Þegar búið var að lesa textann voru upptökurnar sendar til Belgíu, þar sem þær voru klipptar niður í svokallaða hljóðunga, sem eru hljóðbútar af mismunandi lengdum.
Morgunblaðið og Edda - miðlun og útgáfa, höfðu látið okkur í té tíðnitöflur yfir algengustu orð í íslensku skrifmáli og voru þær töflur hafðar til hliðsjónar við val á orðum sem æskilegt væri að væru til heil.
Fyrsta tilraunaútgáfa Röggu leit svo dagsins ljós og reyndist merkilega góð. Þó voru tveir hljóðungar sem voru vitlaust klipptir saman, sem varð til þess að samskeytin heyrðust mjög greinilega. Því var umsvifalaust kippt í liðinn og Ragga hljómar nú eins og hún á að gera.
Aðstandendur tölvuraddarinnar Röggu
Ragga á sér marga aðstandendur. Fyrst ber að nefna að Ragga heitir í höfuðið á Ragnheiði Elínu Clausen, sem ljáði henni rödd sína.
Menntamálaráðuneytið styrkti gerð Röggu.
Síminn sá um heildarfjármögnun og stjórnaði stýrihópnum.
Hexia sá um framkvæmdastjórn við gerð Röggu, allt daglegt umstang og skipulag og lagði verkefninu til einn sérmenntaðan starfsmann, Björn Kristinsson, sem sendur var til Belgíu til að vinna að gerð Röggu hjá Nuance.
Háskóli Íslands lagði til guðföður Röggu, Eirík Rögnvaldsson, sem stýrði þróun málfarsreglna þeirra og hljóðmengja sem Ragga þurfti að kunna skil á. Auk þess átti Háskóli Ísland drjúgan þátt í fjármögnun verkefnisins og gagnavinnslu tengdu því.
Trackwell lagði til aðstoð við rekstur og skipulagningu.
Nuance sá um tæknivinnslu og lagði til hinn undirliggjandi talgervil.
Ragga var tekin upp í
Stúdíó Upptekið.