5.6.2009
Kópavogsbær tekur Vefþuluna í notkun

Kópavogsbær hefur ákveðið að ganga til samstarfs um notkun Vefþulunnar á vef sínum, www.kopavogur.is.  Innleiðing Vefþulunnar á vefnum hefst fljótlega og er áætlað að verkinu verði lokið um miðjan júnímánuð.
Lesa meira...
5.6.2009
Háskólinn á Bifröst hefur tekið Vefþuluna í notkun

Á www.bifrost.is er nú hægt að hlusta á efni vefjarins. Uppsetning og innleiðing á Vefþulunni var unnin af fyrirtækinu Nepal.
Lesa meira...
29.5.2009
Reykjavíkurborg undirritar samning um notkun á Vefþulunni á reykjavik.is

Reykjavíkurborg skrifaði undir samning við Aicon ehf um notkun á vefþulunni fyrir reykjavík.is í gær. Vefþulan verður innleidd á vef Reykjavíkurborgar í kringum mánaðarmótin júni/júli og munu þá notendur reykjavík.is fengið efnið á vefsíðunni lesið upp fyrir sig.
28.5.2009
Félagsbústaðir hafa tekið Vefþuluna í notkun.

Á www.felagsbustadir.is er nú hægt að hlusta á efni vefjarins. Uppsetning og innleiðing á vefþulunni var unnin af fyrirtækinu Eskli. Inni á www.felagsbustadir.is  er nú að finna tengilinn „Hlusta“ og ef smellt er á hann er efnið lesið upp ef notandinn er með hátalara tengda við tölvuna. Við óskum Félagsbústöðum til hamingju með að hafa tekið Vefþuluna í notkun.
Lesa meira...
4.4.2009
Þulan færir út kvíarnar

AICON, sem er hugbúnaðarfyrirtæki, vinnur nú að því að laga Vefþuluna að pdf-útgáfu Morgunblaðsins á netinu. Vefþulan er vefþjónusta sem er þeim eiginleikum gædd að breyta texta á skjá í hljóð og nýtist því blindum, lesblindum og öðrum sem af einhverjum ástæðum eiga erfitt með lestur.
Lesa meira...
31.3.2009
Árborg hefur ákveðið að taka vefþuluna í notkun.

Samið var um afnot sveitarfélagsins af Vefþulunni og gerir notendum vefjarins kost á að fá texta lesinn upphátt.
Lesa meira...
25.11.2008
Tryggingamiðstöðin hefur tekið vefþuluna í notkun.

Á www.tm.is undir auðlesið efni er nú hægt að hlusta á efni vefjarins og geta nú notendur hlustað á efnið ef þeir kjósa.
Lesa meira...
13.6.2008
Upplestur á fréttum mbl.is

Á mbl.is er nú hægt að hlusta á fréttir vefjarins, en settur hefur verið upp hugbúnaður sem les fréttirnar fyrir þá sem það kjósa.  Hugbúnaðurinn kallast Vefþulan og er byggður á talkerfi sem Hexia hefur þróað.
Lesa meira...
18.11.2007
Yfir eitt þúsund manns nýttu sér Vefþuluna á fyrsta degi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði á föstudag nýja íslenska vefþjónustu sem fengið hefur nafnið Vefþula. Vefþulan er ætluð lesblindum námsmönnum og gerir þeim kleift að fá lesinn hvaða texta sem er á netinu, auk þess sem þeir geta sjálfir skrifað texta og fengið hann lesinn fyrir sig.
Lesa meira...




Vefþulan

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá.

Þú skrifar, vefþulan les

Spurningar og svör 

Vefþulan á vefinn þinn

Til að nota vefþuluna þarftu að setja tengil á viðeigandi stað í vefvafranum þínum.

Hér eru leiðbeiningar:

Fyrir Internet Explorer

Fyrir Firefox og Safari

Vefþulan er splunkuný og okkur þætti vænt um ef þú létir okkur vita hvernig hún virkar, hvort eitthvað mætti betur fara, hvort einhverjir hnökrar séu á framburði eða virkni. Þú getur gert það með því að senda póst á hjalp@vefthulan.is   - eða ef þú þarft hjálp geturðu hringt í síma 618-8899.




Tikktakk Hugbúnaður ehf - www.tikktakk.is - Skeifan 8, 108 Reykjavík - Sími: 512 8800 - tikktakk@tikktakk.is